Helför dýranna

Þegar máls er vakið á helför Gyðinga fyrir sextíu árum rúmum, þá spyrja flestir í harmi- og viðurstyggðarblandinni forundran: "Hvernig gat annað eins gerst? Hvernig gat fólk verið svona óheyrilega grimmt og vægðarlaust?"

Og svarið er: af nákvæmlega sömu ástæðu og við, sem þykjumst vera siðgæddar verur, slátrum dýrum í tunglháum fjöllum um allan heim árlega.

Nasistar álitu Gyðinga óæðri manntegund og því réttdræpa hvar sem í þá næðist. Og að sama skapi teljum við að dýrin séu óæðri líftegund, og því sé allt í himnalagi með að sálga þeim okkur til nytja.

En það allra tragikómískasta í þessum siðlausa skrípaleik er án efa það, að dýraát er algerlega ónauðsynlegt og jafnvel skaðlegt: öll rök, hagfræðileg, vistfræðileg og heilsufræðileg, hníga að því að grænmetisát sé miklu betri kostur.

Íhugið þetta!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir þetta hjá þér bróðir :)

Herdís (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband